Um okkur.

Sænsk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað í Reykjavík í júní árið 1997. Tilgangur með stofnun þess var kynna og hvetja viðskiptatengsl milli Íslands og Svíþjóðar. Um 40 fyrirtæki og einstaklingar úr ýmsum greinum atvinnulífsins voru stofnfélagar en á árunum sem liðið hafa hefur félögum fjölgað jafnt og þétt. Markmið Til að SÍV megi ná tilætluðum árangri felst starfsemi þess einkum í að:

  • Stuðla að persónulegum samskiptum milli íslenskra og sænskra athafnamanna.
  • Leiða saman fyrirtæki í svipuðum atvinnurekstri
  • Veita upplýsingar um fyrirtæki og vörur í báðum löndum
  • Kynna ræðumenn sem eru leiðandi á sínu sviði í atvinnulífi hvors lands
  • Stuðla að viðskiptatengslum með viðskiptasendinefndum, málþingum og sýningum

Tilgangur og verkefni                                                     

Tilgangur félagsins er að efla viðskipti og efnahagssamvinnu landanna. Félagið mun leitast við að starfa með þeim félögum á Íslandi og í Svíþjóð, sem vinna að hliðstæðum verkefnum. Til að stuðla að þessum markmiðum mun félagið, eftir efnum og ástæðum, standa fyrir fræðslufundum og ráðstefnum, kynnisferðum milli landanna, vörusýningum í báðum löndum, svo og útgáfustarfsemi til að koma á framfæri upplýsingum um starfsemi félagsins svo og atvinnulíf, fjárfestingamöguleika og viðskiptamöguleika í Svíþjóð og á Íslandi.

Félagið mun jafnframt leitast við að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum á Íslandi og í Svíþjóð.

Stjórn ráðsins.

Formaður:

Jóhann G. Jóhannsson, Alvogen

Stjórnarmeðlimir á Íslandi:

Albert Magnússon, Lindex ehf.

Estrid Brekkan, Utanríkisráðuneytið

Sveinn Guðmundsson, Blóðbanki Íslands

Stjórnarmeðlimir í Svíþjóð:

Björn Zöega, Stockholm Spine Center AB

Kristján Sigurjónsson, turisti.is

Sænsk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100